Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Gæðastjóri / QA Lead

Það er mikið um að vera hjá Origo og nú leitum við að sjálfstæðum og útsjónarsömum sérfræðingi í gæðastjórnun og prófunum til að ganga til liðs við Digital Labs Origo. Í Digital Labs vinnum við að fjölbreyttum og spennandi verkefnum og breytum hugmyndum í stafrænar lausnir sem einfalda daglegt líf fólks og fyrirtækja. Sem gæðastjóri tryggir þú að okkar lausnir virki fyrir notendur og færð tækifæri til að leiða verkefni frá hugmynd til afhendingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og framkvæma gæðaprófanir á stafrænum lausnum
  • Gera prófunaráætlanir og tryggja skýra skráningu og eftirfylgni galla
  • Þróa, innleiða og viðhalda sjálfvirkum prófunum og nýta gervigreind til að bæta gæðastjórnun
  • Leiða afmörkuð verkefni, forgangsraða og halda utan um framvindu
  • Vinna náið með forriturum, hönnuðum og öðrum hagaðilum
  • Sinna verkefnum hjá viðskiptavinum og vera tengiliður milli þeirra og teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Að minnsta kosti 4 ára reynsla af gæðastjórnun og/eða hugbúnaðarprófunum
  • Reynsla af sjálfvirkum prófunum og þekking á prófunartólum
  • Góður skilningur á hugbúnaðarþróun og prófunarferlum
  • Reynsla af því að leiða verkefni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og lausnamiðuð hugsun
Fríðindi í starfi
  • Framúrskrandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.
  • Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
  • Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.
  • Stöðug þróun þekkingar.
  • Veglegur velferðarpakki.
  • Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.
  • Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.
  • Samgöngustyrkur.
  • Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.
  • Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.
  • Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.
Advertisement published16. November 2026
Application deadline29. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Dalvegur 30A
Type of work
Professions
Job Tags