Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Þrifateymi óskar eftir starfsfólki / Join Our Cleaning Team

Við leitum að ábyrgðarfullu og þjónustulunduðu fólki á nýjum og spennandi baðstað sem er að opna í hjarta Laugaráss. Starfið er mikilvægur hluti af því að tryggja hreint, öruggt og notalegt umhverfi fyrir alla gesti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðhalda háu hreinlætis- og snyrtimarki á svæðinu, þar með talið í böðum, búningsklefum og sameiginlegum rýmum.

  • Gæta þess að svæði séu snyrtileg, vel útbúin og tilbúin fyrir gesti.

  • Styðja við daglegan rekstur og vinna náið með teyminu til að skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti.

  • Fylgjast með hreinlæti og bregðast hratt við ef upp koma aðstæður sem krefjast aðgerða.

  • Veita gestum aðstoð og upplýsingar með kurteisi og fagmennsku.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.

  • Reynsla af ræstingu eða störfum í ferðaþjónustu er kostur en ekki skilyrði.

  • Mikil nákvæmni og metnaður fyrir hreinlæti.

  • Jákvætt viðmót og góð þjónustulund.

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi.
  • Við getum boðið upp á húsnæði í nálægð við vinnustaðinn.
  • Tækifæri til starfsþróunar.
  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar.
  • Aðgangur að þjónustu fyrirtækisins.
Advertisement published19. September 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skálholtsvegur 1
Type of work
Professions
Job Tags