Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustustjóri - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að skipulögðum og drífandi einstakling í starf þjónustustjóra sem jafnframt er aðstoðarmaður svæðisstjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og lausnamiðaður með frábæra samskiptahæfni. Heilsugæslan leggur áherslu á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi, þar sem teymisvinna er í lykilhlutverki.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur yfirsýn yfir rekstur stöðvarinnar í samráði við svæðisstjóra. 
  • Er aðstoðarmaður svæðisstjóra.
  • Stýrir daglegum rekstri skrifstofu heilsugæslustöðvar.
  • Þátttaka í ráðningarferli starfsfólks og móttöku nýrra starfsmanna í samráði við svæðisstjóra og stoðsvið HH.
  • Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna. 
  • Þátttaka í úttektum og framsetningu tölulegra gagna um þjónustuna, Þjónustukannanir og árangursmælingar.
  • Gæða- og öryggismál starfsstöðvar í samráði við svæðisstjóra, stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar.
  • Ráðgjöf og þjónusta við starfsmenn og þjónustuþega.
  • Fylgist með skráningu skjólstæðinga  á stöðina og skiptingu þeirra á lækna.
  • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu.
  • Þátttaka í áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Viðbótarmenntun æskileg
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og góðir skipulagshæfileikar
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg
Advertisement published2. December 2024
Application deadline16. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags