KAPP ehf
KAPP ehf
KAPP ehf

Þjónustumaður - Kæliþjónusta

KAPP óskar eftir að ráða vélvirkja eða vélfræðing á þjónustusvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í nýjum höfuðstöðvum KAPP í Kópavogi. KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP framleiðir OptimICE® krapakerfi, forkæla og RAF sprautuvélarkerfi. Félagið rekur öflugt renni-, stál-, véla-, rafmagns- og kæliverkstæði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhaldsþjónusta og fyrirbyggjandi viðhald hjá viðskiptavinum
  • Uppsetning á búnaði og lausnum KAPP hjá viðskiptavinum
  • Eftirlit með kælibúnaði viðskiptavina
  • Heimsóknir til viðskiptavina, innanlands sem og erlendis
  • Viðhald og þjónusta á OptimICE® kæli- og krapakerfum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vélfræðingur, vélstjóri eða vélvirki, sveinspróf er æskilegt
  • Geta til þess að ferðast innanlands sem og erlendis
  • Þekking og reynsla af viðhaldsþjónustu og uppsetningum á vélakerfum og kælibúnaði
  • Góð þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Geta unnið undir álagi og reynsla af fjölbreyttu starfi kostur
Advertisement published4. April 2025
Application deadline24. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Turnahvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Journeyman licensePathCreated with Sketch.Industrial mechanics
Professions
Job Tags