
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Elskar þú glussakerfi og snjóbúnað? Rekstur véla og tækja
Við leitum að fjölhæfum einstaklingi með þekkingu á glussakerfum og snjóbúnaði til að bætast í hópinn hjá véla og tækjateyminu á rekstrardeild Vegagerðarinnar.
Á rekstrardeild starfa um 15 manns og þar af þrír í vélum og tækjum. Rekstrardeild er þjónustudeild og mikið er lagt upp úr góðri liðsheild, ríkri þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun. Deildin þjónustar verkstæði Vegagerðarinnar um allt land, ásamt fasteignum, vöruinnkaupum og birgðastýringu. Vegagerðin er með 18 starfsstöðvar en starfsemi rekstrardeildar er í Suðurhrauni 3 í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útvega varahluti í vélar og tæki, í samráði við verkstæðisformenn og yfirverkstjóra á þjónustustöðvum.
- Eftirlit með notkun og viðhaldi tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
- Ráðgjöf og fræðsla um rekstur og viðhald.
- Aðstoð við gerð viðhaldsáætlana fyrir tækjabúnað.
- Ástandsskoðun á vélum og tækjum á starfsstöðvum Vegagerðarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Yfirgripsmikil þekking á vélum og tækjabúnaði, einkum þeim er varða vegaþjónustu s.s. vegheflum, dreifurum, snjótönnum ásamt vökvakerfum og varahlutum.
- Sveinspróf í vélvirkjun, bifvélavirkjun, eða sambærileg menntun er kostur.
- Mikil samskiptafærni, lausnamiðuð nálgun, hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
- Almenn ökuréttindi, C- og E-réttindi eru kostur.
- Almenn tölvufærni.
- Gott vald á íslensku.
- Góð öryggisvitund.
Advertisement published1. April 2025
Application deadline22. April 2025
Language skills

Required
Location
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Skills
MechanicHuman relationsDriver's licenceIndependenceIndustrial mechanics
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Rennismiður
Stálorka

Viðgerðarmenn - Þjónustuverkstæði
VHE

Smíði álhurða og glugga / Alu doors, windows fabrication
Fagval

Útgerðarstjórn
Reyktal þjónusta ehf.

Bílstjórar
Hópferðabílar Reynis Jóhannsonar

Steypubílstjóri
Steypustöðin

Bifreiðasmiður / bílamálari / bifvélavirki
Ný-sprautun ehf

Viðgerðarmaður/mechanics
Vélaverkstæði Patreksfjarðar

Vélvirki í tæknideild
Myllan-Ora

Vélvirki eða vélfræðingur
Rio Tinto á Íslandi

Viðhaldsmaður tækjabúnaðar
Frumherji hf

Stöðvarstjóri í Reykjanesbæ
Frumherji hf