

Þjónustumaður – John Deere þjónusta
Íslyft óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum þjónustumanni til að slást í öflugt þjónustuteymi okkar á Kársnesi í Kópavogi.
Við erum stærsti innflutningsaðili á vinnuvélum og búnaði á Íslandi og höfum stutt íslenskt atvinnulíf með stolti síðan 1972. Nú leitum við að starfsmanni sem vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og verða hluti af traustu fyrirtæki með sterkan grunn.
-
Sjálfstæð vinna við viðgerðir, viðhald og standsetningu á John Deere og öðrum vélum og tækjum
-
Þjónusta hjá viðskiptavinum á fullbúinni þjónustubifreið – allt sem þú þarft til að vinna verkið vel
-
Fjölbreytt verkefni í spennandi umhverfi þar sem enginn dagur er eins
-
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Stundvísi, ábyrgð og lausnamiðuð hugsun
-
Sveigjanleiki og jákvætt hugarfar
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
-
Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki með yfir 50 ára reynslu
-
Fullbúinn þjónustubíll og öll þau verkfæri sem þarf til að vinna starfið af fagmennsku
-
Tækifæri til að sækja sérfræðiþekkingu og námskeið erlendis
-
Niðurgreiddan hádegismat
-
Starfsmannafélag með fjölbreytta viðburði og afþreyingu – golfhermi, pílukast, borðtennis og pool-borð
-
Öruggt, jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi












