SL Lífeyrissjóður
SL Lífeyrissjóður

Sviðsstjóri áhættustýringarsviðs

SL lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling með yfirgripsmikla þekkingu á áhættustjórnun í starf sviðsstjóra áhættustýringarsviðs.

Sviðsstjóri áhættust‎‎ýringarsviðs er einn af lykilstarfsmönnum sjóðsins og heyrir undir framkvæmdastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar, skipulagi og innra eftirliti.
  • Umsjón og mótun áhættustefnu og áhættustýringarstefnu.
  • Greining, mæling og vöktun áhættu ásamt skýrslugjöf.
  • Eftirlit með markaðsáhættu, fjárfestingarákvörðunum og áreiðanleika gagna.
  • Heildaryfirsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðanda og innri úttektir.
  • Eftirlit með fylgni fjárfestinga við lög og fjárfestingarstefnu sjóðsins.
  • Samskipti, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til eftirlitsaðila og stjórnenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun t.a.m. á sviði fjármála-, verk-, eða tölfræði. Framhaldsmenntun er kostur.
  • Reynsla af greiningarvinnu og/eða áhættustýringu sem nýtist í starfi.
  • Hæfni til að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með skipulögðum hætti.
  • Reynsla af gagnavinnslu og viðskiptagreindartólum (s.s. Power BI).
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót.
  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
  • Sjálfstæði í starfi og ögun í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Advertisement published29. January 2025
Application deadline9. February 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags