Gatna- og veituhönnuður
VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan og skipulagðan einstakling í starf hönnuðar gatna- og veitukerfa. Hönnuður gatna- og veitukerfa starfar á byggðatæknisviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnun gatna- og veitukerfa auk annarra tilheyrandi verkefna við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
- Gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana og skýrslna
- Verkefnastýring í hönnunarverkefnum
- Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
- Almenn ráðgjöf til viðskiptavina og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf i tækni- eða verkfræði
- Haldbær reynsla af hönnun gatna- og veitukerfa
- Þekking af helstu hönnunar– og greiningartólum s.s. AutoCAD og Civil 3d
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi:
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
- Sími og símareikningur greiddur af VSB
- Íþróttastyrkur
Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 9 sérfræðingar við hönnun gatna, veitna og mælingar. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.