Fjölbreytt sumarstörf hjá Veitum
Við leitum að framtakssömu og umbótasinnuðu fólki í fjölbreytt sumarstörf hjá Veitum. Hjá okkur færðu skemmtilega og hagnýta reynslu af því að vinna með reynslumiklu fagfólki á fjölbreyttum og lifandi vinnustað sem leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, vinnuumhverfi og árangur.
Við erum að ráða til okkar sumarfólk í eftirfarandi störf:
- Verkefnastjórnun
- Hönnun hjá Veitum
- Starf í hermilíkönum vatnsmiðla
- Starf í gagnavísindum og gervigreind
- Starf í ástandsgreiningum vatnsmiðla
- Þjónusturáðgjöf
- Starf í dælu- og hreinsistöðvum fráveitu
- Starf í gæðaúttekt á dreifikerfi Veitna
- Starf í rekstri Rafveitu
- Starf í stjórnstöð Rafveitu
- Framkvæmdarflokkur í vatnsmiðlum Veitna
- Framkvæmdarflokkur í rafdreifikerfi Veitna
- Tækniteiknun og innfærsla í landupplýsingakerfi Veitna
- Flokkstjórar í garðyrkju
- Störf í garðyrkju
- Svæðisfulltrúi
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2025.
- Tekið er á móti umsóknum á ráðningarvef Veitna, starf.veitur.is.
- Öllum umsóknum verður svarað fyrir 31. mars 2025.
- Starfstímabilið er frá miðjum maí fram í miðjan ágúst.
Hvers vegna Veitur?
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.