Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa

Svæðisstjóri æskulýsmála á Vestfjörðum

Biskup Íslands auglýsir eftir svæðisstjóra æskulýðsmála í Vestfjarðaprófastsdæmi. Svæðisstjóri hefur í umboði biskups og prófasts tilsjón með æskulýðsstarfi í prófastsdæminu.

Helstu verkefni:
· Að hafa tilsjón og yfirsýn yfir æskulýðsmál í sóknum Vestfjarðaprófastsdæmis.
· Að styðja og veita prestum og starfsfólki ráðgjöf varðandi æskulýðsmál.
· Að byggja upp starf með börnum og unglingum á svæðinu.
· Að skipuleggja æskulýðsmót og aðra viðburði.
· Að undirbúa og skipuleggja fermingabúðir að hausti.
· Að byggja upp og þjálfa æskulýðsleiðtoga í kirkjunni.
· Samstarf við fræðslusvið Þjóðkirkjunnar og aðra svæðisstjóra æskulýðsmála.
· Svæðisstjóri kynni sér stefnumörkun og samþykktir kirkjuþings s.s. fræðslustefnu þjóðkirkjunnar varðandi kirkjulegt starf fyrir ungmenni og vinnur í samræmi við samþykktir héraðsnefndar svæðisins.
· Önnur tilfallandi verkefni í samráði við prófast.

Menntunar og hæfniskröfur:
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. kennslufræði eða guðfræði.
· Hæfni í samskiptum.
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Góð íslenskukunnátta.
· Reynsla af starfi með börnum og ungmennum.
· Reynsla af kirkjustarfi er mikill kostur.

Aðrar upplýsingar:
Um er að ræða 50% starf.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 19. júní 2025.

Starfið er laust frá 1. ágúst 2025.
Skrifstofa svæðisstjóra er í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju, Sólgötu 1, 400 Ísafirði.


Nánari upplýsingar um starfið veita sr. Magnús Erlingsson prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis, [email protected] eða í síma 844 7153.


Biskupsstofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar Þjóðkirkjunnar og Fræðagarðs. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir starfsferli og starfsreynslu, jafnframt skal fylgja afrit af prófskírteini eða staðfestingu á annarri menntun og þjálfun, eins og við á. Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.


Áskilið er hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur þjóðkirkjunnar. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Advertisement published23. May 2025
Application deadline19. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Sólgata 1, 400 Ísafjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags