
Arnarsmári
Leikskólinn Arnarsmári er fimm deilda leikskóli og í honum eru um 84 börn á aldrinum eins árs til sex ára. Arnarsmári er opinn skóli, þ.e. að deildirnar eru ekki mjög stórar en stór svæði um skólann eru samnýtt af öllum deildunum. Leikskólinn stendur á Nónhæð, lóðin er stór og góð og útsýni frá skólanum er mikið og fagurt.
Frumkvæði, vinátta og gleði eru einkunnarorð skólans. Með áherslu á þau gildi er skapað öruggt umhverfi, sem eykur vellíðan og ánægju einstaklingsins og hópsins í heild. Í tengslum við einkunnarorð skólans er lögð áhersla á iðkun dyggða. Unnið er sérstaklega með hverja dyggð í u.þ.b. sex vikur í senn þar sem börn og kennarar tileinka sér þær. Þau ræða saman um dyggðirnar, syngja lög og lesa bækur sem tengjast þeim.
Í Arnarsmára er stuðlað að því að börnin verði sjálfstæðir, gagnrýnir, virkir og ábyrgir þjóðfélagsþegnar. Börnin þurfa að njóta sín sem einstaklingar í barnahópnum, öðlast sjálfstraust, jákvæða sjálfsmynd og sterka sjálfsvitund. Þau þurfa að læra að vinna með öðrum, eignast vini, sýna tillitssemi og öðlast heilbrigða samkennd.
Arnarsmári er einnig Réttindaskóli UNICEF en í því felst að byggja upp lýðræðislegt umhverfi, standa vörð um réttindi barna og rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu okkar.

Sumarstarfsmaður óskast í leikskólann Arnarsmára
Leikskólinn Arnarsmári auglýsir laust til umsóknar skemmtilegt sumarstarf. Leitum að einstaklingi sem er tilbúinn í fjölbreytt og gefandi sumarstarf. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Taka þátt í leik og starfi og sinna þeim verkefnum sem deildarstjóri felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ábyrgð í starfi jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
Advertisement published19. March 2025
Application deadline1. April 2025
Language skills

Required
Location
Arnarsmári 34, 201 Kópavogur
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Stöður leikskólakennara í Árbæ á Selfossi fyrir haustið 2025
Hjallastefnan

Flataskóli óskar eftir umsjónarkennara
Flataskóli

Flataskóli óskar eftir deildarstjóra
Flataskóli

Leikskólasérkennari / þroskaþjálfi
Leikskólinn Brákarborg

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólakennara
Urriðaholtsskóli

Deildarstjóri í Brákarborg
Leikskólinn Brákarborg

Leikskólinn Suðurborg - Sérkennslustjóri
Leikskólinn Suðurborg

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf
Leikskólinn Akrar

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara
Leikskólinn Akrar

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Aðstoðarleikskólastjóri
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast
Leikskólinn Álftaborg