Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf á íbúðarkjarna í Grafarvogi

Íbúðarkjarninn Móavegi 10 óskar eftir öflugum starfsmanni í sumarafleysingar, frá miðjum júlí og fram í byrjun september. Starfshlutfall er 50 % eða eftir samkomulagi. Unnið er á blönduðum vöktum svo sem morgun-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.

Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þá í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Að vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
Advertisement published21. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Móavegur 4, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags