Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag

Svæðisstjóri óskast í vinnu og virkni

Ás styrktarfélag leitar að áhugasömum, jákvæðum og metnaðarfullum svæðisstjóra í Vinnu og virkni í 100% starf. Starfið er laust nú þegar.

Ábyrgð svæðisstjóra felst í að;

  • Stýra daglegu starfi og að sjá til þess að unnið sé eftir hugmyndafræði vinnu og virkni varðandi faglegt starf.
  • Tryggja gott starfsumhverfi bæði fyrir leiðbeinendur og starfsfólk svæðis.
  • Svæðisstjóri nýtir reynslu sína og/eða menntun til að stýra innra starfi.
  • Sér um heildarskipulag á sínu svæði og er í samvinnu við tenglastofnanir og aðstandendur.

Nánari upplýsingar um starfið veita Heba Bogadóttir, Halldóra Kolka Ísberg í síma: 4140500

Helstu verkefni og ábyrgð

Svæðisstjóri ber ábyrgð á daglegri samhæfingu og faglegri framkvæmd starfs á sínu svæði með áherslu á velferð, þátttöku og þarfir fatlaðs fólks. Þá ber svæðisstjóri ábyrgð á að byggja upp og viðhalda góðu starfsumhverfi með traust og virðingu að leiðarljósi.

Starfið felur í sér skipulagningu mannafla og daglegrar starfsemi, stuðning og leiðsögn við leiðbeinendur, innleiðingu nýrra starfsmanna og eftirfylgni með verklagi og gæðamálum. Einnig ber svæðisstjóri  ábyrgð á skipulagningu verkefna og einstaklingsáætlana, utanumhaldi lykilupplýsinga og því að þjónusta og stuðningur sé veittur í samræmi við einstaklingsmiðaða hugmyndafræði starfsstaðarins. Lögð er áhersla á fagmennsku, gott samstarf og virðingu í öllum samskiptum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg. Reynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg og gerð er krafa um íslenskukunnáttu. Starfið krefst góðrar samskiptahæfni, sjálfstæðra vinnubragða og tölvufærni. Starfinu getur fylgt tímabundið álag. Störf hjá Ási geta verið erfið bæði andlega og líkamlega og til að sinna þessum störfum þarf að búa yfir nauðsynlegu heilbrigði.

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar.

Advertisement published15. June 2026
Application deadline29. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ögurhvarf 6, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Working under pressure
Work environment
Professions
Job Tags