Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Íbúðakjarninn Rangársel óskar eftir starfsfólki í stöðu stuðningsfulltrúa í fjölbreytt hlutasta

Íbúðakjarninn Rangársel 16-20 óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og krefjandi hlutastarf í sumar með fólki með þroskaskerðingu og skildar raskanir. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og fá allir aðlögunartíma. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og Bjargráðakerfinu Björg.

Íbúakjarninn Rangársel 16-20 er sólahringsheimili og um er að ræða vaktavinnu dag-, kvöld- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Gilt ökuskírteini.
Advertisement published5. June 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Mururimi 4, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags