Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Lögfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn til að takast á við krefjandi verkefni.

Velferðarsvið veitir fjölbreytta og metnaðarfulla velferðarþjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa Reykjavíkurborgar. Á velferðarsviði starfa um 3.500 manns á yfir 100 starfsstöðum.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.

Skrifstofa velferðarsviðs er með regnbogavottun Reykjavíkurborgar

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Margvísleg ráðgjöf fyrir framkvæmdastjórn, aðra stjórnendur og starfsmenn sviðsins á grundvelli þeirra laga, reglugerða og reglna sem gilda um  starfsemi sviðsins, s.s. félagsþjónustu, málefna fatlaðs fólks, aldraðra, barna og ungmenna og innflytjenda.
  • Samningagerð.
  • Verkefni er varða persónuvernd.
  • Umsjón með samskiptum við aðrar opinberar stofnanir varðandi ýmis álitaefni í daglegum rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kandidats- eða meistarapróf í lögfræði. 
  • Reynsla af sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Þekking á verkefnum er varða persónuvernd.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
  • Þekking á stjórnsýslu velferðarmála  og málefnum innflytjenda er kostur.
  • Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Advertisement published29. May 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Cand.jur.PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Professions
Job Tags