

Aðstoðarkona óskast á morgunvaktir
Ég er 63 ára kona, hjólastólanotandi, búsett í Grafarvogi, og leita að skemmtilegri og áreiðanlegri NPA-aðstoðarkonu til starfa sem fyrst. Um er að ræða vinnu á virkum dögum frá kl. 9:00 til um kl. 12:00–13:00.
Starfið felst í að aðstoða mig við daglegt líf og heimilishald, meðal annars almenn heimilisstörf, þrif og að halda bílnum mínum hreinum. Einnig þarf að geta keyrt bílinn minn þegar þörf krefur. Mikilvægt er að viðkomandi sé kattarvinur þar sem tveir kettir eru á heimilinu.
Ég leita að manneskju sem er áreiðanleg, stundvís, jákvæð og sveigjanleg í samskiptum. Starfið hentar einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, tekið frumkvæði og sinnt fjölbreyttum verkefnum af ábyrgð og alúð.
Hæfniskröfur:
• Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust og geta unnið sjálfstætt.
• Bílpróf (almenn ökuréttindi) er skilyrði.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
• Æskilegt er að umsækjandi sé 25 ára eða eldri.
• Geta hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin
Icelandic
























