Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sumarstarf í Vestmannaeyjum - Starfsmaður í býtibúr

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða öflugan og ábyrgan starfsmann í sumarafleysingu í býtibúr sjúkradeildar HSU í Vestmannaeyjum.

Við stórbrotna náttúru og lifandi sögu í hjarta Vestmannaeyja er einstakt að starfa og búa í öflugu og samhentu samfélagi. Eyjarnar eru aðlaðandi staður fyrir fjölskyldufólk og þá sem leita jafnvægis milli vinnu og einkalífs.

Í Vestmanneyjum starfa um 100 manns. Þar er sjúkrahús sem sinnir víðtækri heilbrigðisþjónustu ásamt hjúkrunarheimili.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með býtibúri og daglegum rekstri þess

  • Aðstoð við matmálstíma á deild

  • Sækja mat í eldhús HSU og bera fram til skjólstæðinga

  • Frágangur og þrif í kjölfar matmálstíma

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri

  • Áhugi á að vinna með fólki og jákvætt viðhorf til þjónustustarfa

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

Advertisement published28. May 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólhlíð 3, 900 Vestmannaeyjar
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Suitable for
Professions
Job Tags