Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í heimastuðningi Hátúni

Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur óskar eftir öflugum teymisstjóra til að stýra teymi sem sinnir félagslegum heimastuðningi. Um er að ræða ótímabundið starf í dagvinnu.

Unnið er eftir samþættri þjónustu heimastuðnings, heimahjúkrunar og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum. Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, s.s. aðstoð við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl. Veittur er sérstakur stuðningur við ákveðna einstaklinga til að rjúfa félagslega einangrun og við þátttöku í daglegu lífi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á samþættingu þjónustu, daglegri stjórnun, skipulagningu og umsjón með framkvæmd félagslegs heimastuðnings
  • Hefur yfirsýn yfir þarfir notenda og veitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi þá þjónustu sem í boði er
  • Ber ábyrgð á nýmati, endurmati og færni-og heilsumati þjónustunnar
  • Gerð þjónustusamnings og stuðningsáætlunar út frá fyrirliggjandi upplýsingum
  • Stjórnun starfsmannamála og framkvæmd starfsmannastefnu
  • Hefur daglega umsjón með vinnuskipulagi og er starfsmönnum til ráðgjafar og stuðnings í málum sem upp koma í starfi.
  • Stýrir fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falinn af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.
  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi æskileg.
  • Reynsla af verkefna/breytingarstjórnun æskileg
  • Reynsla af stjórnun og starfsmannamálum
  • Reynsla af þverfaglegu starfi og teymisvinnu
  • Þekking á sviði félagslegrar þjónustu
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvuþekking
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborga.
  • Reynsla og þekking á fólki með fjölþættan vanda kostur
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Menningarkort Reykjavíkur
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Advertisement published5. June 2026
Application deadline15. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Personnel administrationPathCreated with Sketch.Employee scheduling
Work environment
Professions
Job Tags