NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Frábær aðstoðarkona óskast

50 ára kona í Hafnarfirði óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf.

Vaktir í boði eru:
Mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagar - 15:45-20:00.
Laugardagar - 10-13 og 10-15.
Sunnudagar - 10-13.

Ég bý með manni mínum og kettinum okkar og hef ég áhuga á samverustundum með fjölskyldu og vinum, andlegum málefnum og öllu því sem lífið hefur upp á að bjóða.
Reynsla af umönnunarstarfi er kostur.

Helstu verkefni eru:

  • Hjálp í eldhúsinu
  • Aðstoð við persónulega umhirðu
  • Önnur tilfallandi verkefni varðandi heimilishald

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið. Nánar er hægt að lesa um hugmyndafræðina á www.npa.is.

Hæfniskröfur

  1. Góð samskiptahæfni
  2. Frumkvæði
  3. Jákvæðni
  4. Íslenskukunnátta

Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.

Advertisement published18. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags