Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Starfsfólk í umönnun á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa starfsfólk í umönnun á Hlévangi.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir skjólstæðinga

  • Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni skjólstæðinga

  • Samvinna við starfsfólk í þverfaglegri teymi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum í umönnun er kostur

  • Reynsla af vinnu með öldruðum er kostur

  • Góð samskiptahæfni

  • Fagleg, skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Gott vald á íslensku

  • Þjónustulund og jákvæðni

  • Lágmarksaldur er 18 ár

Advertisement published10. June 2026
Application deadline26. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hlévangur, 230 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags