

Sumarstarf
Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum vantar starfsmann á vaktir í verksmiðju í sumarafleysingar. Einnig vantar sumarstarfsmenn í löndun, bæði vélamenn og verkamenn.
Vaktmannastarfið felur í sér að sjá um innmötun í framleiðslukerfi verksmiðjunnar. Þar sem unnið er á vinnuvél, í eftirliti og þrifum.
Í löndun er bæði krani og dráttarvél með vagn, og einnig starfsmenn sem vinna á bryggju og í lest skipsins.
Verksmiðjan gengur allan sólahringinn og framleiðir úrvals mjöl í þangi og þara sem er selt út um allan heim.
Öryggiskröfur eru strangar og þarf nýr starfsmaður að tileinka sér góða öryggisvitund og taka þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.
Unnar eru sex dagvaktir, þrjár frívaktir, sex næturvaktir og þrjár frívaktir. Laun greidd eftir kjarasamningi Þörungaverksmiðjunnar við Verkalýðsfélag Vestfirðinga.
Löndunarstarfið er unnið í dagvinnu.
Skoðið heimasíðuna https://thorverk.is/ .
Frekari upplýsingar gefur Vésteinn í [email protected]
- Sjá um innmötun í framleiðslukerfi verksmiðjunnar
- Vinna á vinnuvél
- Eftirlit með innmötunarbúnaði og öðrum búnaði
- Þrif á vinnusvæði og tækjum
- Önnur verkefni sem vaktformaður felur starfsmanni
- Löndun á þangi
- Ökuskírteini
- Vinnuvélaréttindi (I og J. F réttindi er kostur)
- Öryggisvitund
- 18 ára eða eldri
- Tilbúin til að vinna vaktavinnu
- Geta sinnt minniháttar viðhaldi













