
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Stuðningsfulltrúar óskast við Sjálandsskóla
Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80%- 100% starf frá og með 13. ágúst 2026 fyrir skólaárið 2026-2027.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 280 nemendur. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í umhverfi sem leggur áherslu á sveigjanlegt skólastarf samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla og menntastefnu Garðabæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Advertisement published20. March 2026
Application deadline8. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Löngulínu 8 210 Garðabæ
Type of work
Skills
ProactiveIndependencePunctualPatience
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Atferlisfræðingur, þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða starfsmaður með sálfræðimenntun
Leikskólinn Suðurborg

Leikskólakennari óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari og eða kennari í íslensku sem annað tungumál í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Stærðfræðikennari í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Sumarstörf á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari /leikskólaliði óskast í leikskólann Hlíð
Leikskólinn Hlíð

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Spennandi sumarstörf í skaðaminnkandi búsetuúrræði fyrir konur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið