
Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Hólum er öflugur háskóli sem býður upp á gæðanám á grunn- og framhaldsnámsstigi háskóla sem og öflugt rannsóknarstarf. Háskólinn er miðstöð þekkingar á þremur sérsviðum sem eru hestafræði, ferðamálafræði og fiskeldis-, sjávar- og vatnalíffræði.
Gildi skólans eru fagmennska, virðing og sköpun.
Stöðvarstjóri skólabús Háskólans á Hólum
Háskólinn á Hólum leitar að öflugum stöðvarstjóra á skólabú hestafræðideildar á Hólum í Hjaltadal. Á skólabúi háskólans eru m.a. þrjár reiðhallir, rúmlega 200 eins hesta stíur, hringvellir og kynbótabraut. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við rekstur skólabús, m.a. umsjón með starfsmönnum, hestahaldi, aðstöðu og fjárhag búsins. Starfið hentar metnaðarfullum aðila, með reynslu og áhuga á hestahaldi, sem hefur gaman samskiptum við fólk og þrífst vel í lifandi starfsumhverfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með rekstri skólabús
- Umsjón með hestahaldi búsins, bújörð, aðstöðu, vélum og tækjum
- Umsjón með starfsmönnum skólabús og skipulagning verkefna
- Virk þátttaka í kennslu- og rannsóknarstarfi hestafræðideildar
- Virk þátttaka í daglegum störfum innan búsins Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði hestamennsku, búvísinda eða stjórnunar
- Farsæl reynsla af búrekstri eða rekstri í hestamennsku
- Haldbær reynsla af hestahaldi og hestamennsku
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni
- Reynsla af starfsmannahaldi er kostur
- Reynsla af þátttöku í kennslu- eða rannsóknarstarfi er kostur
- Líkamlegt hreysti
- Góð færni í ræðu og riti á íslensku, grunnfærni í ensku
- Góð tölvukunnátta
Advertisement published29. August 2024
Application deadline9. September 2024
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hólar 146440, 551 Sauðárkrókur
Type of work
Skills
PositivityLeadershipPhysical fitnessAmbitionConscientiousPlanningPersonnel administrationProject management
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Skipulagsstjóri
Reykjalundur

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Engineering Manager
Fenris Creations

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun

Commissioning Manager
atNorth

Project Director
atNorth

Vinnslustjóri
Samherji hf.

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.