

Stöðvarstjóri - Reykjavíkurflugvöllur
Icelandair leitar að öflugum einstaklingi í stöðu stöðvarstjóra á Reykjavíkurflugvelli.
Stöðvarstjóri ber ábyrgð á daglegum stöðvarrekstri Icelandair á Reykjavíkurflugvelli með öryggi farþega og starfsfólks að leiðarljósi.
Við sækjumst eftir einstaklingi sem eru tilbúnir að vinna í umhverfi þar sem öryggi, framúrskarandi þjónusta og lausnamiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi til að tryggja jákvæða upplifun farþega.
Ábyrgðarsvið:
- Daglegur rekstur Reykjavíkurstöðvarinnar
- Leiðir og styður hóp starfsmanna stöðvarinnar
- Tryggir að öllum kröfum um öryggi og þjónustustefnu félagsins sé framfylgt
- Ber ábyrgð á því að þekkja stefnur og áherslur fyrirtækisins hverju sinni og vinna eftir útgefnum reglum félagsins
- Markviss og uppbyggileg samskipti við innri og ytri hagsmunaaðila
- Mannaaflaskipulag
- Þjálfun og stuðningur við nýja starfsmenn
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnunarstarfi er nauðsynleg
- Reynsla af flugvallarstarfsemi er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Reynsla af þjónustustarfi er æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnáttu í töluðu sem og rituðu máli
- Jákvætt og lausnamiðað hugafar
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. áhugasamir sendi umsókn ásamt kynningarbréfi og ferilskrá.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Einarsson, Manager, [email protected]
Svala Guðjónsdóttir, People Manager, [email protected]











