Íþróttafélagið Þingeyingur
Íþróttafélagið Þingeyingur
Íþróttafélagið Þingeyingur

Starfsmaður Íþróttafélagsins Þingeyings

Íþróttafélagið Þingeyingur leitar að skipulögðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni til að sinna fjölbreyttu starfi innan félagsins. Starfsmaðurinn kemur að umsjón og framkvæmdum ýmissa verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi, sem og umsjón, skipulagningu og þjálfun íþrótta- og æskulýðsstarfs á svæðinu.

Starfið getur verið ein staða í 100% starfshlutfalli eða fleiri stöður í minna starfshlutfalli hver.
Um er að ræða nýtt starf innan félagsins.

Launakjör fara eftir kjarasamningi Starfsgreina Sambandsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en önnur starfskjör fylgja samningi Landssambands Íslenzkra Verzlunarmanna og Samtaka Atvinnulífsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og framkvæmd verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi.
  • Aðgangsstýring, ræsting og skipulag útleigu á mannvirkjum.
  • Stuðningur við daglegan rekstur félagsins og aðstoð við stjórn Þingeyings, eftir því sem við á.
  • Skipulag, umsjón og þjálfun á æfingum félagsins og hreyfiverkefni í samstarfi við Öxarfjarðarskóla.
  • Virkja og auka æfingaframboð á Kópaskeri og í Lundi.
  • Skipulagt íþróttastarf fyrir börn að jafnaði 1–2 sinnum í viku. 
  • Aðkoma að starfi eldri borgara á svæðinu í formi hreyfingar.
  • Undirbúningur, dagleg þáttaka, skipulag og framkvæmd Sumarfrístundar í Öxarfirði, í samstarfi við Norðurþing.
  • Þátttaka í daglegu starfi Sumarfrístundar á sumartímabili.
  • Utanumhald og umsýsla með rafrænum kerfum félagsins, þar á meðal Abler.
  • Innleiðing og uppfærsla á stefnum og viðbragðsáætlunum.

Nokkur sveigjanleiki er til staðar varðandi starfið þar sem það er til þróunar og hægt að móta að einhverju leyti eftir styrkleikum og áhuga öflugra umsækjenda. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Almenn tölvuþekking og færni.
  • Reynsla af þjálfun eða kennslu í æskulýðstarfi eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
  • Jákvæðni, starfsgleði, frumkvæði og sveigjanleiki.
  • Samviskusemi, stundvísi og skipulagshæfni.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Advertisement published23. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lundur 154187, 671 Kópasker
Bakkagata 12, 670 Kópasker
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.First aidPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.No tobaccoPathCreated with Sketch.Quality tracking systemsPathCreated with Sketch.No vapingPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Cleaning
Work environment
Professions
Job Tags