Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í sértæka stuðningsþjónustu.

Um framtíðarstarf er að ræða sem unnið er á vöktum. Æskilegt er að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.

Starfsmaður aðstoðar þjónustuþega með miklar og flókar þjónustuþarfir og vinnur eftir stefnu Hafnarfjarðar í málefnum heimilislausra og veitir einstaklingsmiðaða þjónustu sem er skipulögð með tilliti til þarfa einstaklingsins. Tekið er mið af skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun. Vinnutími getur verið frá morgni og fram á kvöld alla daga vikunnar, unnið í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hvetur og styður notendur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
  • Veitir notendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgir eftir áætlunum og verklagsreglum starfsstöðvar
  • Leiðbeinir notendum og aðstoðar þá t.d. í læknisheimsóknir og við að nýta aðra þjónustu
  • Styrkir sjálfsmynd notenda, sjálfsvirðingu og lífsgæði og efla vald þeirra yfir aðstæðum sínum og lífi og veita þeim félagslegan stuðning
  • Aðstoðar við heimilisverk og hvetur notendur áfram
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Félagsliðamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda
  • Áhugi á skaðaminnkandi hugmyndafræði og batahugmyndafræði
  • Samskipta og samstarfshæfni
  • Sýnir nærgætni og sveigjanleika en getur sett mörk
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Einstaklingurinn þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.

Nánari upplýsingar veitir Áslaug Erla Hansdóttir teymisstjóri sértækrar heimaþjónustu [email protected] eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published22. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags