Hlíðabær
Hlíðabær

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun

Hlíðabær er sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma.

Markmið starfseminnar er að bjóða upp á einstaklingshæfða en jafnframt fjölbreytta þjálfun. Gildin okkar eru virðing, virkni og vellíðan. Frekari upplýsingar eru á hlidabaer.is

Í Hlíðabæ starfar samhentur hópur fólks af ýmsum sviðum. Við leitum að einstaklingum sem hafa ánægju af samskiptum og vill aðstoða aðra við að takast á við fjölbreytt verkefni í jákvæðu og hvetjandi umhverfi. Markmið starfseminnar er að viðhalda líkamlegri, hugrænni og félagslegri færni.

Meðal verkefna eru ýmis konar hreyfing, bæði úti og inni, fjölbreytt hópastarf á vinnustofum sem og í garðinum og þátttaka í söngstundum og félagsstarfi.

Opið er virka daga frá kl 8:00-16:00.

Ráðning frá 1.1.2027 eða eftir samkomulagi.

Launakjör skv. kjarasamningum við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingshæfð nálgun í þjónustu
  • Skipulagning einstaklings- og hópastarfs með öðru starfsfólki
  • Stýra og leiðbeina í einstaklings- og hópastarfi
  • Stuðla að góðri andlegri og líkamlegri líðan skjólstæðinganna
  • Viðhald og skipulag vinnusvæðis
  • Vettvangsferðir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnu
  • Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
  • Reynsla og/eða áhugi á að vinna með fólki og að mæta þörfum þess
  • Gott verkvit og ánægja af fjölbreyttum verkefnum, jafnt innanhúss sem utan
  • Nám á heilbrigðssviði er kostur, t.d. iðjuþjálfun, sjúkraliðanám, þroskaþjálfun, hjúkrunarfræði og íþrótta- og heilsufræði 
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published16. October 2026
Application deadline26. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Flókagata 53, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Work environment
Professions
Job Tags