Grunnskólinn Borgarfirði eystra
Grunnskólinn Borgarfirði eystra
Grunnskólinn Borgarfirði eystra

Skólaliði og ræstingar í Fjarðarborg í 50% starf

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir skólaliða í 50% starf. Viðkomandi mun einnig sinna ræstingum í félagsheimilinu Fjarðarborg þar sem skrifstofur sveitarfélagsins eru m.a. til húsa.

Unnið er alla virka daga milli klukkan 10:00 og 14:00 í grunnskólanum en möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma í samkomulagi við skólastjóra sem er næsti yfirmaður. Ræstingar í Fjarðarborg fara fram samkvæmt nánara samkomulagi við fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði.

Grunnskólinn á Borgarfirði eystra er heildstæður grunn- og leikskóli þar sem litið er á nám nemenda frá leikskóla til grunnskóla sem eina heild. Í öllu skólastarfinu er rými fyrir fjölbreytta kennsluhætti og samþættingu námsgreina samhliða metnaði fyrir bóklegum greinum.

Starfið er laust nú þegar og er ráðið í starfið út júní 2026 með möguleika á framtíðarstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn þrif á skólahúsnæði og í Fjarðarborg
  • Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi 
  • Almenn gæsla í frímínútum og hádegi 
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta 
  • Frumkvæði og metnaður í starfi 
  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf til verkefna 
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni 
  • Stundvísi og samviskusemi 
  • Hreint sakavottorð 
  • 18 ára og eldri  
Advertisement published15. October 2026
Application deadline29. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grunnskóli , 720 Borgarfjörður (eystri)
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags