Starfsmaður Dýraverndarsambands Íslands
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) leitar eftir starfsmanni. Starfshlutfall er 50% með möguleika á aukningu í framtíðinni. Starfsmaður starfar í umboði stjórnar og er formaður næsti yfirmaður starfsmanns.
DÍS er óháð samtök dýravina sem beita sér fyrir bættri velferð dýra með því að stuðla að málefnalegri umræðu og fræðslu um dýravelferð á opinberum vettvangi, standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðu opinberu eftirliti með velferð dýra.
-
Dagleg verkefni og störf í umboði stjórnar og í samráði við formann.
-
Greiningar- og hugmyndavinna.
-
Ábyrgð á félagatali.
-
Ábyrgð á skjalavörslu og ferlum.
-
Símsvörun og tölvupóstsamskipti.
-
Umsjón með samfélagsmiðlum.
-
Umsjón með herferðum sambandsins.
-
Viðburðastjórnun og undirbúningur funda.
-
Utanumhald og eftirfylgni verkefna og einstakra mála.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Góð ritfærni.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Útsjónarsemi og lausnamiðun.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta.
-
Einlægur dýravinur.
-
Reynsla af starfsemi félagasamtaka er kostur.