Náttúrufræðistofnun
Náttúrufræðistofnun

Starf í móttöku og eldhúsi

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar 60% starf í móttöku og eldhúsi á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í umsjón með rafrænni móttöku, póstsendingum og umsjón með framreiðslueldhúsi hússins ásamt innkaupum. Auk þess mun viðkomandi taka þátt í og aðstoða við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunarinnar í samráði við yfirmann.

Leitað er að þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi með létta lund sem getur unnið sjálfstætt.

Starfshlutfall er 60% og vinnutími er frá kl.9:30 til 14:00 alla virka daga.

Starfið heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og mannauðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með rafrænni móttöku

  • Umsjón með sendingum til og frá stofnun

  • Umsjón með eldhúsi, morgunkaffi, framreiðslu og pöntun hádegisverðar ásamt frágangi

  • Umsjón með sameiginlegum rýmum

  • Innkaup og pantanir á kaffistofu og skrifstofu

  • Aðstoð við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunar í samráði við yfirmann

  • Tilfallandi verkefni á sviðinu að ósk sviðsstjóra eða önnur verkefni í samráði við hann

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn starfsreynsla og þekking sem nýtist í starfi.

  • Gild ökuréttindi

  • Góð samskiptafærni

  • Rík þjónustulund og jákvæðni

  • Geta til að vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og tímaplani.

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

  • Hreint sakavottorð

Advertisement published10. January 2026
Application deadline19. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags