

Söluráðgjafi verslana- og vöruhúsalausna
BVT – Bako Verslunartækni leitar að öflugum söluráðgjafa til liðs við söluteymið okkar!
Hefur þú áhuga á sölu, viðskiptatengslum og því að finna lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini?
Við hjá BVT leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi starf við sölu og ráðgjöf á búnaði og heildarlausnum fyrir verslanir, vöruhús og atvinnulífið.
Starfið fellur undir verslunar- og vöruhúsasvið BVT þar sem allt frá minnstu verðmerkingum upp í stærstu vöruhús landsins eru partur af daglegu starfi.
Starfið felur í sér náið samstarf við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk þar sem markmiðið er að þróa og útfæra lausnir sem mæta þörfum hvers verkefnis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf á verslunarinnréttingum, lagerhillukerfum, vöruhúsabúnaði og tengdum lausnum.
- Þarfagreining og útfærsla lausna í samstarfi við viðskiptavini.
- Gerð tilboða, kostnaðaráætlana og eftirfylgni með söluverkefnum.
- Uppbygging og viðhald langtímaviðskiptasambanda.
- Öflun nýrra viðskiptatækifæra og þróun núverandi viðskiptasambanda.
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
- Samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins við framkvæmd og afhendingu verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu, viðskiptaráðgjöf eða sambærilegum störfum er kostur.
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Tæknilegur skilningur og hæfni til að lesa teikningar er kostur.
- Þekking á verslunarrekstri, vöruhúsum eða innréttingalausnum er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi starf hjá öflugu fyrirtæki.
- Tækifæri til að vinna að spennandi verkefnum með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins.
- Sjálfstæði í starfi og möguleika á faglegum og persónulegum vexti.
- Gott starfsumhverfi og öflugan hóp samstarfsfólks.
- Aðgang að fjölbreyttu vöruúrvali og samstarfi við leiðandi erlenda framleiðendur.
- Mötuneyti á staðnum
- Virkt starfsmannafélag
Advertisement published19. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Dragháls 22
Type of work
Skills
Customer checkoutDeterminationReliabilityAdaptabilityDriveProfessionalismProactiveHonestyClean criminal recordPositivityHuman relationsAmbitionPrecisionDriver's licencePhone communicationEmail communicationConscientiousIndependencePlanningNeatnessSalesPunctualFlexibilityMeticulousnessWorking under pressureBusiness relationsProduct presentationCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Afgreiðsla og útstillingar
Bóksala stúdenta

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Söluráðgjafi - fjölbýli og fyrirtæki
Ísorka

Sölustjóri
Ísorka

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar í afleysingar
ICEWEAR

Söluráðgjafi í notendalausnum
Advania

Vörustjóri notendalausna
Advania

SALES ASSISTANT - Remember Reykjavík & Friends
Remember Reykjavík

Sölumaður
Garðlist ehf