
Bóksala stúdenta
Bóksala stúdenta er eina bókaverslun sinnar tegundar á landinu. Meginmarkmið hennar er að útvega stúdentum við Háskóla Íslands kennslubækur og önnur námsgögn á sanngjörnu verði. Þá sinnir hún fleirum en stúdentum við Háskóla Íslands og þjónustar alla háskóla landsins, fjölda framhaldsskóla og ýmsar stofnanir svo nokkuð sé nefnt.
Bóksalan er rekin af Félagsstofnun stúdenta. Verslunin er staðsett í Háskólatorgi en allar vörur má einnig finna í vefverslun. Þar er að auki fjöldi annarra bóka sem og rafbækur, en einnig er hægt að sérpanta bækur hvaðanæva úr heiminum.
Bókakaffi stúdenta er staðsett í Bóksölu stúdenta. Þar boðið uppá gæðakaffi og nýbakaðar kökur á stúdentaverði. Kaupfélag stúdenta er einnig staðsett í Bóksölunni. Þar fást ýmsar gagnlegar og skemmtilegar nytja- og gjafavörur sem heppilegt er að geta gripið í leiðinni.

Afgreiðsla og útstillingar
Afgreiðsla og útstillingar
Við hjá Bóksölu stúdenta leitum að áhugasömum einstaklinga til afgreiðslustarfa í verslun okkar á Háskólatorgi. Starfið felur í sér afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini, ráðgjöf um bækur og aðrar vörur og svörun fyrirspurna í verslun, í síma og með tölvupósti. Viðkomandi sér einnig um móttöku sérpantana, stillir vörum upp í verslun og sér til þess að verslunin sé ávallt hrein og snyrtileg. Í Bóksölunni er jafnframt kaffibar og aðstoðar viðkomandi við afgreiðslu á honum eftir því sem þörf krefur.
Vinnutími er virka daga frá kl. 09 til 17. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla viðskiptavina
- Svörun fyrirspurna um bækur, vörur og verð
- Símsvörun
- Móttaka sérpantana
- Samskipti vegna sérpantana og kennslubóka sem hafa verið teknar frá fyrir viðskiptavini
- Áfylling bóka, ritfanga og ýmissa vara í hillur
- Útstillingar á bókum og vörum eftir árstíðum og söluáherslum hverju sinni
- Halda útstillingum og hillum hreinum og snyrtilegum
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Skipulagshæfni
- Snyrtimennska
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Þekking á DK er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Advertisement published21. October 2026
Application deadline4. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Sæmundargata 4-10 4R, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
ReliabilityProfessionalismHuman relationsConscientiousPlanningCustomer service
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Dalvík - starfsmaður
Vínbúðin

Akureyri - starfsmaður
Vínbúðin

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Söluráðgjafi - fjölbýli og fyrirtæki
Ísorka

Starfsmaður í borðsal og þjónustumiðstöð - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar í afleysingar
ICEWEAR

Söluráðgjafi í notendalausnum
Advania

Vörustjóri notendalausna
Advania

SALES ASSISTANT - Remember Reykjavík & Friends
Remember Reykjavík