Ísorka
Ísorka

Söluráðgjafi - fjölbýli og fyrirtæki

Ísorka leitar að söluráðgjafa sem tekur við fyrirspurnum frá húsfélögum og fyrirtækjum og fylgir þeim alla leið — frá fyrsta símtali að uppsettri hleðslustöð.

Ísorka rekur hleðslunet um land allt og hleðslulausnir fyrir fjölbýli.

Helstu verkefni og ábyrgð

•  Tilboðsgerð fyrir húsfélög og minni fyrirtæki, frá fyrirspurn að undirskrift

•  Uppmæling og undirbúningur verkefna og skráning þeirra í verkefnakerfi

•  Samskipti við rafverktaka

•  Eftirfylgni með tilboðum og umsjón með sölutækifærum sem berast inn

•  Kynningar á húsfundum

Menntunar- og hæfniskröfur

•  Reynsla af sölu eða þjónustu við fyrirtæki eða húsfélög

•  Skipulögð vinnubrögð og geta til að halda utan um mörg mál samtímis

•  Góð og örugg framkoma

•  Áhugi á hleðslulausnum og tækninýjungum

•  Reynsla af fjölbýlis- eða húsfélagsgeiranum er kostur

•  Gott vald á íslensku og ensku

•  Bílpróf

Fríðindi í starfi

Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku

Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.

Niðurgreiðsla á mat

Afsláttur af leigu á bílum hjá Hertz

Íþróttastyrkur

Advertisement published21. October 2026
Application deadline31. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)