Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar

Ertu málari eða hefur starfað við málningu og langar að nýta þekkingu þína á annan hátt?Hjá Húsasmiðjunni færðu tækifæri til að vinna með fagfólki, veita ráðgjöf og hjálpa bæði einstaklingum og fagfólki að velja réttu lausnirnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að öflugum liðsmanni með góða þekkingu á málningu og málningarvinnu til að leiða málningar- og múrdeild Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur starfað við málningu eða lokið iðnmenntun í greininni og vill nýta fagþekkingu sína í ráðgjöf og sölu.Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla fagþekkingu sinni og veita viðskiptavinum bæði fagfólki og einstaklingum framúrskarandi ráðgjöf.
Helstu verkefni:

  • Fagleg ráðgjöf um málningu, múr og tengdar vörur, almenna yfirborðsmeðferð og efnisval
  • Sala og þjónusta við einstaklinga
  • Sala, sókn og ráðgjöf við málara og annað fagfólk
  • Umsjón með málningardeild
  • Pantanir og birgðastýring
  • Framsetning vara og útstillingar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög æskileg.
  • Góð þekking á málningu, yfirborðsmeðferð og efnisvali.
  • Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við einstaklinga og fagmenn.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á sölu og þjónustu.
  • Stundvísi og ábyrgð í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
  • Aðgangur að orlofshúsum.
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Advertisement published13. October 2026
Application deadline27. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Sólvangur 7, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags