
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Söluráðgjafi glugga- og sérlausna
Við leitum að öflugum, jákvæðum og drífandi sölumanni í teymið okkar í álgluggum og sérlausnum.Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir sölu, er óhræddur við að taka frumkvæði og sækir tækifærin af krafti frekar en að bíða eftir að hlutirnir gerist. Ef þú hefur gaman af því að byggja upp öflug tengsl við viðskiptavini, veita faglega ráðgjöf og vinna sjálfstætt í líflegu umhverfi – þá viljum við fá þig í lið með okkur!Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni.
- Frumkvæði og drifkraftur: Þú ert mætt/ur til að ná árangri, sækir verkin, fylgir tækifærum eftir og lokar samningum.
- Gleði og jákvæðni: Þú smitar út frá þér góðri orku, ert lausnamiðuð/aður og skapar góða stemningu í samskiptum.
- Fagmennska: Þú veitir framúrskarandi þjónustu, setur þig vel inn í sérlausnir og þarfir viðskiptavina og skilar vandaðri vinnu.
- Tengslamyndun: Þú ert lagin/n við að byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við verktaka, húsbyggjendur og önnur fyrirtæki.
- Sjálfstæð vinnubrögð: Þú skipuleggur þinn eigin vinnudag vel, tekur ákvarðanir og berð ábyrgð á þínum árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf, sala og þjónusta á álgluggum og sérlausnum til einstaklinga og fyrirtækja.
- Að leita uppi ný tækifæri og byggja upp nýja viðskiptavild.
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð.
- Náið samstarf við birgja, verktaka og innri teyma Húsasmiðjunnar.
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, tækni- eða iðnmenntun æskileg
- Þekking á AutoCad eða sambærilegu æskileg.
- Reynsla af sölustörfum kostur
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku
- Almenn tölvukunnátta
Advertisement published1. October 2026
Application deadline15. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
Dynamics AXConscientiousSalesCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar
Akureyrarbær

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Byko

Háskólakennari í byggingafræði
Háskólinn í Reykjavík

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Álnabær leitar af starfsmanni í uppsetningar
Álnabær

Byggingartæknifræðingur
Verksýn

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Þjónustufulltrúi fasteignaþjónustu
Umhverfis- og skipulagssvið

Starfsmaður í áhaldahús
Reykhólahreppur