

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Við erum að leita að öflugum einstaklingum til liðs við okkur í sölu á grófvöru til fagaðila í fagverslun okkar á Selhellu.
Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu á grófvöru ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til viðskiptavina.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að starfsfólki með:
- Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Þekkingu á byggingarefni (kostur)
- Reynslu af sölustarfi (kostur)
- Góða tölvukunnáttu
- Íslensku- og enskukunnáttu (skilyrði)
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt tilboðsgerð
- Eftirfylgni með tilboðum og pöntunum frá upphafi til afhendingar
- Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Nánari upplýsingar veitir Bragi Jónsson, rekstrarstjóri ([email protected]).
Icelandic
English










