
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið. Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum.
Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma. Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengisvirkjun, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun, Fjarðarárvirkjunum og Múlavirkjun. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu þrettán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í hleðslulausnum. Í starfinu tekur viðkomandi virkan þátt í uppbyggingu hleðslunets HS Orku og gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í uppbyggingu og þróun hleðslunets HS Orku
- Umsjón, eftirlit og viðhald núverandi hleðslunets
- Þjónusta og ráðgjöf við núverandi og verðandi viðskiptavini
- Greining tækifæra og þátttaka í áætlanagerð vegna frekari uppbyggingar
- Samskipti við birgja, verktaka og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í rafvirkjun er æskileg
- Þekking eða reynsla af hleðslulausnum fyrir rafbíla er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni
- Rík öryggisvitund
- Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].
Advertisement published7. October 2026
Application deadline23. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Sölumaður á matvörusviði
Danól

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Viðskiptastjóri Já
Sýn