Vistor
Vistor
Vistor

Viðskiptastjóri hjá Vistor

Vistor leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf viðskiptastjóra.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, vill byggja upp sterk tengsl og hefur metnað fyrir árangri og að hafa áhrif. Starfið felur í sér markaðssetningu og sölu lyfja ásamt uppbyggingu traustra tengsla við heilbrigðisstarfsfólk. Þú munt vinna náið með heilbrigðisstarfsfólki, samstarfsaðilum og alþjóðlegum birgjum við að miðla þekkingu, þróa viðskiptasambönd og skapa ný tækifæri.

Hvort sem þú ert nýútskrifaður nemi eða með reynslu að baki skiptir mestu máli að þú sért forvitin/n, lausnamiðuð/lausnamiðaður og tilbúin/n að læra, taka frumkvæði og ná árangri í góðu teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og þróa markaðs- og viðskiptastarf á sviði frumlyfja
  • Byggja upp og efla traust tengsl við heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila
  • Miðla faglegri þekkingu með fundum, kynningum, ráðstefnum og fræðsluverkefnum
  • Greina og þróa ný tækifæri og taka virkan þátt í viðskiptaþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á heilbrigðissviði
  • Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfni
  • Frumkvæði, drifkraftur, lausnamiðað hugarfar og metnaður til að ná árangri
  • Áhugi á heilbrigðismálum og löngun til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini
  • Áhugi á að nýta sjálfvirkni og stafrænar lausnir til að bæta ferla og auka árangur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Advertisement published9. October 2026
Application deadline16. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.Sales
Suitable for
Professions
Job Tags