Vetur Music
Vetur Music
Vetur Music

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála

Við hjá Vetur Music leitum að metnaðarfullum og skapandi aðila í stöðu A&R fulltrúa í teymið okkar! Við erum ört stækkandi tónlistarútgáfa á Íslandi, og þurfum því að stækka hópinn til að bregðast við meira umfangi.

Starfslýsing

Við leitum að A&R fulltrúa sem mun vinna náið með tónlistarfólki. Hlutverkið felur í sér að bæði finna nýjar vonarstjörnur og styðja við þær sem eru þegar í hópnum. Starfið felur í sér náið samstarf við listamenn, þróun á þeirra ferli, stuðningur við útgáfu, listræn stjórnun og móta feril listamanna.

Þá fellur einnig undir starfið að sjá um samfélagsmiðla útgáfunnar.

Starfið er lykilhlutverk í fyrirtækinu og kostur ef viðkomandi hefur áhuga á því að taka að sér stærri stjórnunar- og leiðtogahlutverk með fram vexti félagsins.

Við leitum að einstaklingi með reynslu af því að starfa við tónlist, eða í tónlistarbransanum til að hjálpa okkur að byggja upp starfsemi félagins og stuðla að bættu umhverfi tónlistar á Íslandi. Viðkomandi mun starfa náið með stjórnendum og því tækifæri til að geta haft bein áhrif á framtíð tónlistarútgáfunnar.

Þetta hlutverk er fyrir aðila sem hefur brennandi áhuga á því að byggja upp innviði tónlistar á Íslandi, og lætur verkin tala. Mikill sveigjanleiki er á hlutfalli og vinnutíma, og mögulegt að vinna bæði á starfstöð okkar eða í fjarvinnu. Reynsla af markaðsstörfum, verkferlum og útgáfustörfum er kostur en ekki skilyrði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórnun - Móta og setja upp innri ferla, verklag og skipulag.
  • Ráðgjöf og samstarf við aðra stjórnendur um stefnu, forgangsröðun og þróun.
  • Tengslamyndun: samstarfsaðilar, miðlar, dreifingaraðilar o.fl.
  • Tryggja að rekstur og þjónusta Vetur Music styðji við tónlistarfólk
  • Markaðsstörf - Samfélagsmiðlar, markaðsáætlun o.s.frv.
  • Hafa auga fyrir upprennandi listamönnum og nýjum spennandi tækifærum.
  • Vinna náið með listamönnum að listrænni stefnu, útgáfu og framvindu.
  • Tengja listamenn við rétta aðila, pródúsenta, lagahöfunda og aðra samstarfsaðila.
  • Vera brú milli listamanna og Vetur Music í útgáfuferlinu.
  • Fylgjast með hlustunartölum, tónlistarsenunni og tækifærum á Íslandi og erlendis.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góður tónlistarsmekkur er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af íslenska tónlistarbransanum eða útgáfustarfsemi er kostur.
  • Reynsla af A&R, artist management, útgáfu, viðburðum eða sambærilegu.
  • Sterkt tengslanet eða hæfileiki til að byggja það upp hratt.
  • Menntun á sviði lista, viðskipta, markaðs, menningargeira eða sambærilegu er kostur en ekki skilyrði.
  • Frumkvæði, skapandi hugsun og löngun til að vaxa í starfi.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu ört vaxandi fyrirtæki.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og vinnutími.
  • Tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og taka meiri ábyrgð með tímanum.
Advertisement published5. October 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hringbraut 49, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Designing proceduresPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.ComposingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Planning
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags