
Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun og hugverkum í starf sérfræðings.
Í boði er spennandi starf í nútímalegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Starfið er á hugverka- og stjórnsýslusviði.
Nánari upplýsingar um Hugverkastofuna er að finna á www.hugverk.is.
Helstu verkefni:
- Meðhöndlun umsókna og erinda sem berast Hugverkastofunni.
- Undirbúningur stjórnvaldsákvarðana.
- Leiðbeiningar og ráðgjöf til viðskiptavina.
- Þátttaka í teymisvinnu.
- Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Þekking á hugverkaréttindum á sviði iðnaðar eða í atvinnulífinu er kostur.
- Jákvætt viðmót, lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi.
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
- Lausnamiðuð rökhugsun og greiningarhæfni.
- Nákvæmni í vinnubrögðum.
- Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Nánar um ferlið:
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).
Icelandic










