Dagar hf.
Dagar hf.
Dagar hf.

Sérfræðingur í vaktaskipulagningu

Dagar leita að öflugum sérfræðingi sem mun bera ábyrgð á að skipuleggja, viðhalda og bæta vinnuvaktir starfsfólks. Starfið felur í sér gerð vaktaáætlana, greiningu á mönnunarþörf, eftirfylgni með mönnun á verkstöðum og samstarf við stjórnendur um stöðugar umbætur á mönnun og vaktaskipulagi. Einstaklingurinn starfar innan rekstrarsviðs en vinnur þvert á fyrirtækið í nánu samstarfi við ólíkar einingar. Lögð er áhersla á sterka greiningarfærni, skipulagshæfni og hafa góða samskiptafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og útbúa daglegar, vikulegar og mánaðarlegar vaktir starfsfólks.
  • Fylgjast með framkvæmd vakta og bregðast við vegna m.a. veikinda, orlofs, leyfa eða annara ófyrirséðra aðstæðna.
  • Leiða þróun og stöðugar umbætur á Field Service hugbúnaði í samstarfi við notendur, upplýsingatæknideild og þjónustuaðila.
  • Tryggja að mönnun sé í samræmi við rekstrarþarfir og þjónustustig.
  • Samræma vaktaskipti, yfirvinnu og afleysingar.
  • Halda utan um upplýsingar um tiltæki starfsfólks og tryggja að vaktaskrár séu réttar og uppfærðar.
  • Greina þróun í fjarvistum og skipulagi vakta og leggja fram tillögur að umbótum.
  • Taka saman skýrslur og lykiltölur um mönnun og vinnustundaskipulag fyrir stjórnendur.
  • Styðja við áætlanagerð vegna árstíðasveiflna, verkefna og annarra breytinga á mönnunarþörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla.
  • Sterk greiningar- og lausnamiðuð hugsun.
  • Þekking á vinnulöggjöf, kjarasamningum og mönnunaráætlunum kostur.
  • Framúrskarandi skipulagshæfni og hæfni til að vinna markvisst undir álagi.
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Góð kunnátta í Microsoft Excel og öðrum Office-forritum.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og forgangsraða verkefnum.
  • Reynsla af greiningar- og skýrslugerð, t.d. í Power BI eða sambærilegum kerfum kostur.
Advertisement published25. September 2026
Application deadline5. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Lyngás 17, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags