Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf

Langar þig að starfa í lifandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem þjónusta, nákvæmni og traust skipta máli?

Við leitum að drífandi og þjónustulunduðum féhirði til starfa á Einstaklingssviði Íslandsbanka í Reykjanesbæ. Um er að ræða mikilvægt hlutverk í framlínu bankans þar sem þú tekur þátt í að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini og tryggja örugga og skilvirka afgreiðslu fjármálaþjónustu.

ATH: um er að ræða tímabundið starf í um það bil 18 mánuði og æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla viðskiptavina og þjónusta í útibúi
  • Umsjón með reiðufé og verðmætum samkvæmt verklagsreglum bankans
  • Inn- og útgreiðslur, gjaldeyrisviðskipti og önnur dagleg afgreiðsla
  • Kynning og leiðbeiningar um stafrænar lausnir bankans
  • Samstarf við aðra sérfræðinga útibúsins um þarfir viðskiptavina
  • Þátttaka í að tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur ríka þjónustulund og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu
  • Er nákvæmur, skipulagður og ber ábyrgð á sínum verkefnum
  • Á auðvelt með mannleg samskipti og liðsheildarvinnu
  • Hefur gott tölvulæsi og áhuga á stafrænum lausnum
  • Getur unnið vel undir álagi og tekið sjálfstæðar ákvarðanir
  • Hefur lokið framhaldsskólamenntun, háskólamenntun er kostur
Af hverju Íslandsbanki

Hjá Íslandsbanka starfar öflugur hópur fólks sem vinnur saman að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini. Við leggjum áherslu á traust, fagmennsku, samvinnu og stöðuga þróun. Starfsfólk fær tækifæri til að vaxa í starfi, þróa hæfni sína og hafa áhrif í nútímalegu vinnuumhverfi.

Advertisement published1. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TellerPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags