Orkusalan
Orkusalan

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna

Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum stuðbolta til að ganga til liðs við hleðsluteymið okkar. Hleðsluþjónusta Orkusölunnar er í miklum vexti og framundan eru spennandi verkefni tengd almennings- og heimahleðslu ásamt hleðslulausnum fyrir fyrirtæki og fjölbýli. Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og samstarfsfólk innan Orkusölunnar.

Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og leggur metnað í að veita góða þjónustu. Viðkomandi er skipulögð manneskja, drífandi og á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu og fylgja málum eftir frá fyrstu fyrirspurn til virkrar hleðslulausnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta, sala og ráðgjöf til viðskiptavina um hleðslulausnir
  • Umsjón með fyrirspurnum, tilboðum og samningagerð
  • Samskipti við fyrirtæki, húsfélög og aðra viðskiptavini
  • Umsjón og eftirfylgni með samningum og viðskiptasamböndum
  • Eftirfylgni með verkefnum og ábyrgð á góðri þjónustu
  • Þátttaka í áframhaldandi þróun ferla og þjónustu hleðsluteymis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði
  • Góðir söluhæfileikar og rík þjónustulund
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar
  • Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð
  • Reynsla af sölu og þjónustu er kostur
  • Áhugi á rafbílum, orkuskiptum og tækni er mikill kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
Advertisement published3. October 2026
Application deadline16. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags