Garðlist ehf
Garðlist ehf
Garðlist ehf

Sölumaður

Garðlist ehf auglýsir eftir sveigjanlegum, hressum og skemmtilegum sölumanni á skrifstofu fyrirtækisins í fjölbreytt verkefni.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu, kann að veita framúrskarandi þjónustu og þekkir hvernig á byggja upp langtímaviðskiptasamband. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar vel einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og finna lausnir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Helstu verkefni
    • Sala og ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina.

    • Móttaka og eftirfylgni fyrirspurna og sölutækifæra.

    • Tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða.

    • Uppbygging og viðhald öflugra viðskiptasambanda.

    • Náið samstarf við verkefnastjóra við skipulagningu og eftirfylgni verkefna.

    • Greining nýrra viðskiptatækifæra 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu og þjónustustörfum.

  • Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur. 
  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.

  • Góð viðskiptavitund og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina.

  • Frumkvæði, metnaður og hæfni til að fylgja málum eftir.

  • Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi.

  • Reynsla af notkun Dynamics 365 er kostur. 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

Fríðindi í starfi

Niðurgreiddur hádegismatur

Advertisement published19. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Tunguháls 7, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags