
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Sölu- og þjónustufulltrúi í verslun Símans í Smáralind
Síminn leitar að hressum einstaklingi til að ganga til liðs við öflugan hóp starfsfólks í verslun Símans í Smáralind. Við leitum að aðila með brennandi áhuga á sölu, með framúrskarandi þjónustulund og metnað til að leysa málin í fyrstu snertingu.
Í boði er starf í 100% vaktavinnu þar sem unnið er aðra hverja helgi og þarf viðkomandi aðili að geta hafið störf fljótlega.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Einstök samskiptahæfni og þjónustulund
- Framúrskarandi söluhæfileikar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Geta til að stuðla að góðum liðsanda
- Áhugi á að læra nýja hluti
- Stundvísi
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun er æskileg
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Advertisement published5. September 2025
Application deadline14. September 2025
Language skills

Required
Location
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
HonestyPositivityConscientiousIndependenceCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verkstæðismóttaka
KvikkFix

Superstar @ Keflavik Airport
Rammagerðin

A4 Akureyri - Sölufulltrúi
A4

Brennur þú fyrir þjónustu?
Dekkjasalan

Þjónustufulltrúi í þjónustuver
IKEA

Aðstoðarverslunarstjóri Reykjavík
Lífland ehf.

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild - Nesvellir
Hrafnista

Hópstjóri - þjónustuver
Byko

Starf þjónustufulltrúa á Hreyfli.
Hreyfill

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Ford á Íslandi | Brimborg

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Akureyri
Byko

Söluráðgjafi Volvo
Volvo á Íslandi | Brimborg