A4
A4
A4

A4 Akureyri - Sölufulltrúi

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa til starfa í verslun okkar Akureyri.
Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa. Vinnutíminn er alla virka daga frá 11:00 til 18:00 og þriðja hvern laugardag.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldur og eldri

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Bára í síma 580-0063 eða gegnum netfangið [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Advertisement published5. September 2025
Application deadline15. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Dalsbraut 147480, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags