Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Slökkviliðsstjóri slökkviliðs Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Fjarðabyggðar.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í slökkvistöðinni á Hrauni á Reyðarfirði þar sem öflugt atvinnulið starfar á sólarhringsvöktum. Slökkvilið Fjarðabyggðar er auk þess með starfstöðvar í öðrum byggðakjörnum Fjarðabyggðar mannað hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum.

Við leitum að öflugum og framsýnum leiðtoga til vinna með áherslur bæjarfélagsins í þróun öryggismála að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur slökkviliðs og dagleg stjórnun starfsstöðva slökkviliðs Fjarðabyggðar.
  • Leiðir faglegt starf slökkviliðsins og ber ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við lög og reglugerðir.
  • Stýrir úttektum, eldvarnareftirliti og stjórnun aðgerða.
  • Ábyrgð á gerð samninga um þjónustu slökkviliðs í Fjarðabyggð í samráði við bæjarstjóra.
  • Ber ábyrgð á skipulagi þjálfunar og stýrir þjálfun slökkviliðsins.
  • Ber ábyrgð á og skipuleggur slökkvistarf utanhúss, annast vatnsöflun, reyklosun og dælingu.
  • Umsjón og eftirlit með búnaði almannavarna í Fjarðabyggð og samskipti við viðbragðsaðila vegna almannavarna. Situr í aðgerðarstjórn almannavarna.
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu um lög, reglugerðir og stjórnvaldsfyrirmæli varðandi eldvarnir og öryggi.
  • Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og eftirliti með útgjöldum slökkviliðs og þeim hluta almannavarna sem tilheyrir Fjarðabyggð.
  • Slökkviliðsstjóri starfar samkvæmt lögum nr. 75/2000.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
  • Löggilding sem slökkviliðsmaður og sjúkraflutningamaður er skilyrði.
  • Farsæl reynsla af stjórnun slökkviliðs er áskilin.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni, drifkraftur og fagmennska.
  • Jákvætt viðhorf og mjög góð samskiptafærni.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Færni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
Advertisement published11. September 2024
Application deadline30. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
EnglishEnglishIntermediate
Location
Slökkvistöðin á Reyðarfirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Working under pressure
Professions
Job Tags