Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sjúkraflutningamaður Akranesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann í dagvinnu með bakvaktarskyldu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér sjúkraflutninga, umhirðu og viðhald húsnæðis og tækja auk annarra tilfallandi daglegra verkefna sem viðkomandi sinnir í umboði við næsta yfirmann. 

Í starfinu er notaður búnaður á borð við hjartalínurita, hjartastuðtæki, öndunargrímur og fleira sem nýtist við að aðstoða sjúklinga. 

Sjúkraflutningamenn þurfa að geta unnið undir talsverðu álagi sem tengist því að koma að fólki í mjög erfiðum aðstæðum. Í starfi sjúkraflutningamanns er mikilvægt að þekkja faglegar takmarkanir og virða þagnarskyldu þegar við á. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er skilyrði.
  • Gilt ökuskírteini og gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi) er skilyrði.
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi og reynsla.
  • Reynsla af störfum sjúkraflutningamanna og/eða reynsla af öðrum störfum í heilbrigðisgeiranum.
  • Góð íslensku- og ensku kunnátta er skilyrði.
Advertisement published6. September 2024
Application deadline20. September 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
EnglishEnglishVery good
Location
Merkigerði 9, 300 Akranes
Type of work
Professions
Job Tags