Skrifstofustarf - Ráðhús Borgarbyggðar
Borgarbyggð óskar eftir að ráða fulltrúa á skrifstofu Borgarbyggðar í 100% starf.
Borgarbyggð leitar eftir jákvæðum og drífandi einstaklingi í tvískipt starf á skrifstofu Borgarbyggðar. Starfið skiptist í 50% starf launafulltrúa á fjármála- og stjórnsýslusviði og 50% starf fulltrúa á skipulags- og umhverfissviði.
Hlutverk fulltrúa er ýmis umsýsla á viðkomandi sviðum og þar að leiðandi krefst starfið að viðkomandi sé skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Um 100% starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Launafulltrúi:
• Launavinnsla og frágangur launa
• Launaröðun og launagreiðslur skv. kjara- og ráðningarsamningum
• Upplýsingagjöf og ráðgjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
• Ýmis umsjón og utanumhald í tengslum við launakerfi og upplýsingar
• Ýmsar skýrslugerðir, greiningar, samantektir og úrvinnsla á sviði launa- og kjaramála
Fulltrúi á skipulags- og umhverfissviði:
· Skráning mannvirkja
· Utanumhald verkefna m.a. gagnasjá, kortavefsjá og almenn málavinnsla
· Almenn skjalavinnsla m.a. frágangur funda, gerð reikninga og skjölun
· Menntun sem nýtist í starfi
· Þekking og reynsla af launavinnslu og kjaramálum
· Þekking á launakerfi H3 og Vinnustund er kostur
· Þekking á kerfinu Bygging er kostur
· Góð kunnátta og færni í Excel
· Góð íslenskufærni, nákvæm og öguð vinnubrögð
· Frumkvæði og sjálfstæði
· Mjög góð almenn tölvukunnátta
· Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frábær vinnuaðstaða og sveigjanleiki
- 36 klst vinnuvika
- Heilsustyrkur til starfsmanna