Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli - stuðningsfulltrúar

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80-100% starf fyrir komandi skólaár.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 280 nemendur og starfsmenn eru rúmlega 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og til virkrar þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Advertisement published6. August 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags